Áblástur

Áblástur (herpes simplex)

Hvað er Áblástur (herpes simplex)?

Frunsur (áblástur) lýsa sér með útbrotum þéttskipaðra vessafylltra blaðra sem mynda sár á vörum og við munn og stafa af sýkingu af völdum herpesveira. Þessar veirur geta blundað í líkamanum langtímum saman án þess að valda nokkrum óþægindum. Veiran sest að í taugarótum en getur brotist fram í húðfrumur og orsakað endurtekin útbrot. Það gerist þó helst ef viðkomandi einstaklingur kvefast, við streitu eða sólbrennur og hjá konum getur veiran látið á sér kræla við tíðablæðingar. Óþægindin byrja með stingjum, sviða og kláða, síðan kemur fram roði, þroti og útbrot sem verða að vessafylltri blöðru. Blöðrurnar springa oft og eftir situr sár. Sárin gróa venjulega á nokkrum vikum. 


Frunsurnar koma venjulega fram aftur og aftur á sama stað, oftast á varir eða í nánd við þær. Herpesveiran getur legið mislengi í dvala.


Sýkingin er einstaklingsbundin. Sumir fá engin eða væg einkenni. Hjá börnum getur sýkingin lýst sér sem sármyndun í slímhúð munnhols og koks (gingivo stomatitis herpetica acuta) sem getur valdið vanlíðan og hita. Einni til þremur vikum eftir fyrsta smit myndast frunsa sem grær á nokkrum vikum.

Fyrsta einkenni frunsu er óþægileg, stingandi og ertandi tilfinning í húðinni. Eftir stuttan tíma myndast vökvafylltar blöðrur í húðinni. Einkennandi er hrúður sem myndast á sárinu og dettur yfirleitt af eftir 8-10 daga. Smithætta er meðan vessar úr frunsunni eða sárið er opið. Þótt mótefni hafi verið myndað gegn veirunni Herpes simplex eru 20% líkur á að frunsu verði vart síðar.


Stilltu þig um að snerta frunsurnar því að þær eru smitandi. Frunsurnar eru mest smitandi á því stigi sem einkennist af roða, þrota og útbrotum. Yfirleitt hverfa frunsurnar á 7-10 dögum. Oft getur hjálpað að kæla frunsuna með ísmola, einkum í fyrstu.


Get ég fengið lyf án lyfseðils?

Zovir krem inniheldur virka efnið acíklóvír sem fæst án lyfseðils. Einnig er hægt að fá Valocyclovir töflur sem er ráðlagt að taka ef einkennin eru slæm. Ef þessi lyf eru notuð strax og vart verður við fyrstu einkenni frunsumyndunar er hægt að hægja á fjölgun veirunnar. Þannig er mögulegt að stöðva herpesútbrot með þessum lyfjum og takmarkast þá frunsan við þær frumur sem þegar eru sýktar. Þeir sem byrja snemma að nota lyfin fá minni sár sem gróa fyrr og smitunartímabilið styttist. Engu að síður verður herpesveiran ávallt til staðar í taugarótum og getur valdið frunsu síðar. Zinkoxíð pasta, frunsulausn eða áburður gegn frunsum geta dregið úr óþægindum sem fylgja frunsu. Þegar sárið fer að gróa er gott að bera mýkjandi krem á það.


Hvað get ég gert í forvarnarskyni?

Forðastu að koma við frunsurnar. Slepptu kossum og munnmökum meðan þú finnur fyrir óþægindum til þess að komast hjá því að smita aðra. Þegar sárin hafa gróið smitar þú ekki lengur. Ef þér hættir til þess að fá frunsur í sól skaltu bera sterka sólvörn á varirnar þegar þú ert úti í sterkri sól. 

Share by: